Tónlistarhópurinn Cauda Collective.
Tónlistarhópurinn Cauda Collective.

Tónlistarhópurinn Cauda Collective hefur tónleikaröð sína í haust með tónleikum í Hannesar­holti í kvöld, 27. september, klukkan 20.15 og leikur verk eftir Eygló Höskuldsdóttur Viborg og Jessie Montgomery. Eru það strengjakvartettar og dúettar fyrir sópran og selló. Verk Eyglóar, Silfra og Kona lítur við, einkennast af „áferðarfögrum strófum þar sem flaututónar strengjahljóðfæra eru notaðir á frumlegan hátt“, eins og segir í tilkynningu. Verk Jessie, Loisaida, My Love og Break Away, eru sögð einkennast af „leikglöðum en kraftmiklum laglínum sem oft eru unnar upp úr spuna“. Þær Eygló og Jessie eiga báðar að baki tónlistarnám í New York.