Anna Álfheiður Brynjólfsdóttir hefur opnað sýninguna Strengir í Mjólkurbúðinni, sal Myndlistarfélagsins, Kaupvangsstræti 12 á Akureyri. Sýningin stendur til 8. október og er opið eftirfarandi daga: 28
Anna Álfheiður Brynjólfsdóttir hefur opnað sýninguna Strengir í Mjólkurbúðinni, sal Myndlistarfélagsins, Kaupvangsstræti 12 á Akureyri. Sýningin stendur til 8. október og er opið eftirfarandi daga: 28. og 29. september kl. 12-17, 3. október kl. 11-17 og 4.-6. október kl. 12-17.
Strengir er sjötta einkasýning Önnu Álfheiðar og inniheldur um 11 málverk sem unnin hafa verið á þessu ári. Verkin eru óhlutbundin og í geómetrískum anda.