Þrjátíu ár eru liðin frá fyrstu útsendingu hinna geysivinsælu þátta Friends. Fyrsta útsendingin var 22. september 2024 en enn í dag njóta þættirnir mikilla vinsælda og hafa haft áhrif á heilu kynslóðirnar.
Í grein Clare Thorp, pistlahöfundar á BBC, tekur hún saman þær breytingar á lífsstíl fólks og hugmyndum um fjölskyldu sem Friends stendur fyrir. Þættirnir fjalla um sex vini sem búa saman í tveimur íbúðum í New York. Eins og Thorp minnist á í greininni hefst þátturinn á því að ein þeirra, Rachel, stormar inn á kaffihúsið Central Perk í brúðarkjól eftir að hafa flúið eigið brúðkaup og segir þar með skilið við framtíð sem ung eiginkona í hefðbundnu heimilislífi. Vinkona hennar Monica er síðar í þættinum hvött til að klippa í sundur kreditkort sem faðir hennar borgar fyrir og auka þar með við sjálfstæði sitt. Thorp vill meina að Friends sýni hvernig vinir geta orðið
...