Byrjað var nú í vikunni að þreskja víðfeðma kornakrana í Gunnarsholti á Rangárvöllum, þar sem meira en 300 hektarar eru undir í ræktun á byggi, repju og hveiti. Þrátt fyrir rysjótta rigningartíð í sumar er Björgvin Þór Harðarson bóndi sáttur við…
— Morgunblaðið/Sigurður Bogi

Byrjað var nú í vikunni að þreskja víðfeðma kornakrana í Gunnarsholti á Rangárvöllum, þar sem meira en 300 hektarar eru undir í ræktun á byggi, repju og hveiti. Þrátt fyrir rysjótta rigningartíð í sumar er Björgvin Þór Harðarson bóndi sáttur við uppskeruna, sem hann væntir að verði samanlagt um 1.000 tonn. Veðrið lék við Björgvin og hans menn þegar þeir voru nú í vikunni við störf á ökrunum bleiku þar sem Hekla – hið máttuga eldfjall – setur sterkan svip á umhverfi og landslag. » 14