Sambíóin Bad Genius / Slæmur snillingur ★★★·· Leikstjórn: J.C. Lee. Handrit: J.C. Lee og Julius Onah. Aðalleikarar: Callian Liang, Taylor Hickson, Samuel Braun, Jabari Banks og Benedict Wong. Kanada, 2024. 96 mín.
Áhugaverð saga „Í heild er Slæmir snillingar spennandi mynd sem segir áhugaverða sögu jafnvel þótt persónurnar séu grunnar og steríótýpískar,“ segir í rýni um myndina sem er endurgerð af samnefndri taílenskri mynd frá 2017.

Kvikmyndir

Jóna Gréta

Hilmarsdóttir

Slæmur snillingur segir frá afburðanemanda, Lynn Kang (Callina Liang), sem sér tækifæri í því að hjálpa auðugum skólasystkinum sínum, Grace (Taylor Hickson) og Pat (Samuel Braun), að svindla á prófum. Lynn er innflytjandi og býr ein ásamt föður sínum (Benedict Wong) sem rekur þvottahús. Hinir ríku samnemendur hennar vilja gera foreldrum sínum til geðs og komast inn í virtan háskóla og Lynn þarf á peningum að halda til að gera draum sinn um að fara í tónlistarnám í Juilliard að raunveruleika. Í hennar stöðu duga óaðfinnanlegir hæfileikar ekki. Lynn finnur ótrúlega leið til að svindla og græða á menntakerfinu og nær þannig að hefna sín á kerfinu sem mismunar henni og fleirum í hennar stöðu. Ef eitthvað fer úrskeiðis verða afleiðingarnar hins vegar mun

...