Á fimmtudag verður í Skaftafelli í Öræfum og á Hala í Suðursveit haldin opnun á verkefninu Jöklasýn sem er samstarf Jöklarannsóknafélags Íslands og ljósmyndarans James Balogs. Valdir hafa verið staðir og sjónarhorn til að skrásetja breytingar á jöklum landsins með þátttöku almennings og vísindafólks.
Markmið þessa er að safna í aðgengilegan gagnabanka ljósmyndum um breytingar á íslenskum jöklum næstu 100 árin og miðla þeim upplýsingum áfram. Hugmyndafræðin er að gögnin sem þarna verða til skapi sjónræna arfleifð og séu viðbót við hefðbundnar jökulsporðamælingar.
Stór áfangi náðist í sumar þegar tvær hringsjár voru settar upp við sunnanverðan Vatnajökul. Önnur sjónskífan er á Sjónarnípu á Skaftafellsheiði með útsýni yfir Skaftafellsjökul. Hin er nærri Skálafellsjökli.
Hringsjárnar eru með einföldu yfirlitskorti af jöklunum og útlínum hans á mismunandi tímum. Einnig festingu sem sími er lagður í, þannig að sama sjónarhorn fáist jafnan við