„Við sem samfélag þurfum að staldra við og hugsa hvert um annað. Ég vil hvetja alla, sérstaklega ungu kynslóðina, til að koma og taka þátt í þessari mikilvægu stund til þess að gleðjast og heiðra minningu Bryndísar með okkur,“ segir…
Minnast Bryndísar Klöru Góðgerðarráð Verzlunarskóla Íslands, efri röð f.v. Tinna Karen Sigurðardóttir, Aníta Líf Ólafsdóttir, Sunna Hauksdóttir, Kristjana Mist Logadóttir, Ingunn Böðvarsdóttir og Inga Lilja Ómarsdóttir. Neðri röð f.v. Eva Björk Angarita, Kristín Salka Auðunsdóttir, Birta María Aðalsteinsdóttir, Helga Hrund Ólafsdóttir og Salka Elín Sæþórsdóttir.

„Við sem samfélag þurfum að staldra við og hugsa hvert um annað. Ég vil hvetja alla, sérstaklega ungu kynslóðina, til að koma og taka þátt í þessari mikilvægu stund til þess að gleðjast og heiðra minningu Bryndísar með okkur,“ segir Kristjana Mist Logadóttir, formaður góðgerðarráðs Verzlunarskóla Íslands.

Minningartónleikar um Bryndísi Klöru Birgisdóttur verða í Háskólabíói fimmtudagskvöldið 3. október kl. 19.30. Húsið verður opnað 18.30. Fram koma tónlistarmennirnir Friðrik Dór, GDRN, Aron Can, Bubbi Morthens og Páll Óskar.

Bryndís Klara lést 30. ágúst sl. af sárum sínum eftir stunguárás á Menningarnótt. Hún var 17 ára, nemandi í Verzlunarskóla Íslands. Góðgerðarráð skólans hefur undirbúið tónleikana en sala miða fer fram á tix.is. Allur ágóði rennur beint í minningarsjóð Bryndísar Klöru en verndari sjóðsins er

...