Tómas Gunnarsson fæddist 24. september 1937. Hann lést 1. september 2024.

Útför fór fram 13. september 2024.

Fallinn er frá Tómas Gunnarsson, lögfræðingur og endurskoðandi.

Fækkar nú óðum okkur skólabræðrum sem útskrifuðumst stúdentar úr okkar litlu bekkjardeild 6y stærðfræðideildar Menntaskólans í Reykjavík á vormánuðum 1957, þá þrettán talsins. Nú standa sex eftir.

Á hugann leitar þá stakan hans Bólu-Hjálmars:

Mínir vinir fara fjöld,

feigðin þessa heimtar

...