Skoraði Dango Outtara skoraði annað mark Bournemouth í gær.
Skoraði Dango Outtara skoraði annað mark Bournemouth í gær. — AFP/Adrian Dennis

Bournemouth hafði betur gegn Southampton, 3:1, á heimavelli í grannaslag í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í gær. Evanilson kom Bournemouth yfir á 17. mínútu og Dango Ouattara bætti við öðru markinu á 32. mínútu, áður en Antoine Semenyo fullkomnaði glæsilegan fyrri hálfleik Bournemouth með þriðja markinu á 39. mínútu. Taylor Harwood-Bellis minnkaði muninn fyrir Southampton á 51. mínútu en nær komust gestirnir ekki.