Ólafur Friðrik Eiríksson fæddist 28. ágúst 1966. Hann lést 28. ágúst 2024.

Útförin fór 12. september 2024.

Elsku frændi minn. Mér er tregt um tungu. Minning þín mun lifa með mér. Ég minnist okkar spila fótbolta með upprúlluðum ullarsokki á ganginum á Sjúkrahúsi Siglufjarðar í denn ásamt bræðrum mínum þeim Kela, Baldri og Sverri. Okkur var harðbannað að vera með bolta inni! Margar fleiri góðar minningar streyma nú um hugann og ylja mér um hjartarætur. Ég mun geyma þær með mér til loka.

Amma okkar hún Rikka orti um afa okkar og nafna þinn, Óla Eiríks, eftirmæli. Þar í er þetta fallega ljóð:

Tryggur vinur traustur faðir

traustur líka eiginmaður.

Öllum vildi hann

...