Þróttur Mollee Swift hefur leikið vel í marki liðsins að undanförnu.
Þróttur Mollee Swift hefur leikið vel í marki liðsins að undanförnu. — Morgunblaðið/Eyþór

Mollee Swift, markvörður Þróttar í Reykjavík, var besti leikmaðurinn í 22. umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta að mati Morgunblaðsins.

Þetta er í annað skipti á stuttum tíma sem Mollee er besti leikmaður umferðar en það var hún líka í 19. umferð deildarinnar um síðustu mánaðamót.

Þá átti hún stórleik í óvæntu jafntefli gegn Val og um liðna helgi var bandaríski markvörðurinn í aöalhlutverki hjá Þrótturum í markalausu jafntefli gegn Þór/KA í Laugardalnum.

Hún fékk tvö M fyrir frammistöðu sína og var eini leikmaðurinn í umferðinni sem fékk þá einkunn.

Mollee hefur leikið alla 22 leiki Þróttar í deildinni á þessu tímabili og átt drjúgan þátt í bættu gengi liðsins eftir því

...