— Morgunblaðið/Árni Sæberg

Hvaleyrarvatn í Hafnarfirði er orðið ansi lítið og nánast þornað upp. Morgunblaðið sagði frá því í ágúst að Kaldá væri nær vatnslaus en vatnsból Hafnarfjarðarbæjar er í Kaldárbotnum. Minni bráðnun í fjöllum sökum lægri lofthita og þynnra snjóalags síðasta vetur hefur áhrif á grunnvatnsstöðuna. Guðmundur Elíasson veitustjóri Hafnarfjarðarbæjar segir lága grunnvatnsstöðu engin áhrif hafa á vatnsbúskapinn, hvorki hvað varðar Kaldá né Hvaleyrarvatn, en lækki hún mjög mikið geti það vissulega haft áhrif. » 8