Að þekkja eina máfategund frá annarri getur verið æði snúið og enn erfiðara ef um ungfuglabúning er að ræða, eins og þessi á meðfylgjandi ljósmynd klæðist. Í þessu tilviki er um að ræða merkisgest, lónamáf, ekki ósvipaðan hettumáfnum okkar í útliti…
— Morgunblaðið/Sigurður Ægisson

Að þekkja eina máfategund frá annarri getur verið æði snúið og enn erfiðara ef um ungfuglabúning er að ræða, eins og þessi á meðfylgjandi ljósmynd klæðist. Í þessu tilviki er um að ræða merkisgest, lónamáf, ekki ósvipaðan hettumáfnum okkar í útliti í fullorðinsbúningi, en þó aðeins stærri og með voldugra nef og dekkri fætur, og svarta hettu, sem nær lengra niður á hálsinn en á þeim síðarnefnda.

Áður fyrr verpti lónamáfurinn eingöngu við Svartahaf og austanvert Miðjarðarhaf en á síðustu árum hefur hann numið land í Vestur-Evrópu og meðal annars verpt á Bretlandseyjum og Írlandi. Hans varð fyrst vart hér á landi árið 2013 og hefur sést í nokkur skipti eftir það.

Téður ungfugl hefur haldið til á Höfn í Hornafirði undanfarna daga.