Arnar Þór Jónsson
Arnar Þór Jónsson

Skjálftavirkni í stjórnmálum er nokkur, sem m.a. má sjá af því að Arnar Þór Jónsson, lögmaður, fv. varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins og forsetaframbjóðandi, hefur stofnað Lýðræðisflokkinn. Hann vill að svo stöddu ekki nefna neina aðra aðstandendur, en sá Hulduher verður opinberaður þegar boðað verður til kosninga.

Flokksstofnunin á sér nokkurn aðdraganda, en í sumar rakti Týr í Viðskiptablaðinu hvað legið geti að baki slíku fyrirtæki: „Helstu ástæðurnar eru efnahagslegar og stýrast af því fráleita fyrirkomulagi sem Alþingi hefur sett um starf stjórnmálaflokka og fjármögnun þeirra.

Sósíalistaflokkurinn náði ekki manni á þing [en fékk] 4,1% atkvæða á landsvísu í kosningunum og þar með 130 m.kr. greiðslu frá ríkinu eða um 30 milljónir á ári, vegna reglna um ríkisstyrki við stjórnmálaflokka. Það er nokkuð

...