Ormar Þór Guðmundsson fæddist á Akranesi 2. febrúar 1935. Hann lést 26. september 2024.

Foreldrar hans voru Guðmundur Björnsson kennari á Akranesi, f. 24. mars 1902 í Núpsdalstungu í Miðfirði, d. 17. nóvember 1989, og Pálína Þorsteinsdóttir húsmóðir, f. 28. janúar 1908 í Þorsteinshúsi á Stöðvarfirði, d. 13. október 1999. Systkini Ormars eru Gerður Birna, f. 1938, Björn Þorsteinn f. 1939, d. 2019, Ásgeir Rafn, f. 1942, og Atli Freyr, f. 1948, d. 2019.

Eiginkona Ormars er Kristín Valtýsdóttir, f. 27.2. 1939. Foreldrar hennar voru Hans Gillert, f. 1894, d. 1988, og Elfriede Firmans, f. 1909, d. 1948. Börn Ormars og Kristínar eru 1) Sif, læknir, f. 14.10. 1961, maki Þórhallur Þráinsson, f. 1962, synir þeirra Þráinn, f. 1990, og Óttar, f. 1996, unnusta Katrín Wang, f. 1998. 2) Harri, lögfræðingur, f. 13.10. 1964, maki Unnur Einarsdóttir, f. 1967,

...