Elvar Guðmundsson fæddist í Reykjavík 19. nóvember 1963. Hann lést á heimili sínu í Reykjavík 14. september 2024.

Foreldrar hans voru hjónin Guðmundur Pétursson slökkviliðsmaður, f. 13.11. 1931, d. 30.12. 2017, og Hólmfríður Guðmundsdóttir húsmóðir, f. 25.6. 1924, d. 28.12. 2021. Bróðir Elvars er Úlfar, f. 1961. Systkini Elvars samfeðra eru Ásdís Erna, f. 1954, d. 2021, Jóna Vilborg, f. 1955, og Pétur Sturla, f. 1956. Systkini sammæðra eru Elín Eyfjörð, f. 1945, Jón Axel, f. 1950, Nína Elínborg, f. 1953, d. 2009, og Gunnlaugur Þór, f. 1955.

Dóttir Elvars með fyrrverandi sambýliskonu Bjarnveigu Eiríksdóttur, f. 23.8. 1958, er Hólmfríður, f. 25.2. 1991. Eiginmaður Hólmfríðar er Kristmundur Ágúst Jónsson, f. 13.6. 1991. Dætur þeirra eru Emelíana Ágústa, f. 5.3. 2021, og Alexandra Fríða, f. 10.10.

...