„Þetta hefur verið ljúf skylda og blóðgjöf varð fljótt að vana,“ segir Aðalsteinn Sigfússon, sem gaf blóð í 250. sinn í gær. Þetta var jafnframt síðasta blóðgjöf Aðalsteins, sem nú þarf að hætta þeim vegna aldurs
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Þetta hefur verið ljúf skylda og blóðgjöf varð fljótt að vana,“ segir Aðalsteinn Sigfússon, sem gaf blóð í 250. sinn í gær. Þetta var jafnframt síðasta blóðgjöf Aðalsteins, sem nú þarf að hætta þeim vegna aldurs. Í tímans rás hefur Aðalsteinn mætt í Blóðbankann að meðtali 5-6 sinnum á ári ásamt því að svara kallinu umfram það þegar nauðsynlegt hefur verið.
„Vextirnir í Blóðbankanum eru háir og blóðið er sá höfuðstóll – undirstaða – sem heldur heilbrigðiskerfinu á Íslandi gangandi. Að gefa
...