Flutt verður tónlist eftir Jón Múla á hádegistónleikum í Fríkirkjunni í dag, fimmtudaginn 3. október. Yfirskrift tónleikanna er „Brestir og brak“. Þar sameinast ungt tónlistarfólk með bakgrunn í klassískri og rytmískri tónlist í gegnum…
Guðrún Brjánsdóttir
Guðrún Brjánsdóttir

Flutt verður tónlist eftir Jón Múla á hádegistónleikum í Fríkirkjunni í dag, fimmtudaginn 3. október. Yfirskrift tónleikanna er „Brestir og brak“. Þar sameinast ungt tónlistarfólk með bakgrunn í klassískri og rytmískri tónlist í gegnum leikandi og hugljúfa tóna Jóns Múla Árnasonar, að því er segir í tilkynningu.

Flytjendur eru söngkonurnar Guðrún Brjánsdóttir og Solveig Óskarsdóttir, Hannes Arason á djasstrompet og Anna Þórhildur Gunnarsdóttir á píanó. Tónleikarnir hefjast kl. 12 og taka um hálfa klukkustund. Þeir eru hluti af tónleikaröðinni Á ljúfum nótum í Fríkirkjunni. Aðgangseyrir er 2.000 kr. en gestir eru beðnir að athuga að ekki er tekið við greiðslukortum.