Hendum ekki fjármunum í óþarfa.
Guðlaugur Þór Þórðarson
Það er engin ástæða til að eyða fjármunum í að flytja Reykjavíkurflugvöll úr Vatnsmýri. Flugvöllurinn er vel staðsettur og það myndi kosta óheyrilega fjármuni að flytja hann.
Við erum í innviðaskuld og hljótum að byrja á brýnum verkefnum en ekki henda fjármunum í óþarfa. Að auki býður staðsetning flugvallarins í hjarta höfuðborgar allra landsmanna upp á mikla möguleika sérstaklega þegar litið er til græns innanlandsflugs. Þau tækifæri verða ekki nýtt nema flugvöllur í Reykjavík verði áfram vel staðsettur í Vatnsmýri. Við eigum að nýta skattfé almennings í brýnni verkefni.
Höfundur er ráðherra og þingmaður Reykvíkinga.