Kjalarnes Frá vettvangi slyssins 2020. Málið fer aftur í rannsókn.
Kjalarnes Frá vettvangi slyssins 2020. Málið fer aftur í rannsókn. — Morgunblaðið/Íris

Ríkissaksóknari hefur fellt úr gildi ákvörðun héraðssaksóknara frá því í júní síðastliðnum um að fella niður mál í tengslum við banaslys á Kjalarnesi sumarið 2020. Hjón á bifhjóli fórust í slysinu sem átti sér stað á nýlögðu og hálu malbiki sem stóðst ekki kröfur Vegagerðarinnar. Er héraðssaksóknara gert að taka málið til viðeigandi meðferðar á ný.

Auk hjónanna missti ökumaður bifhjóls, sem ekið var næst á eftir þeim, stjórn á bifhjóli sínu með þeim afleiðingum að hann hafnaði utan vegar og slasaðist nokkuð alvarlega. Þá slasaðist tvennt, ökumenn tveggja annarra bifhjóla, þegar þau þurftu að setja fæturna niður í götuna, sem kostaði mikil átök fyrir fót- og handleggi.

„Það er mat ríkissaksóknara að við rannsókn málsins hafi ekki verið aflað nægjanlegra gagna til þess að unnt sé að taka afstöðu til þess hvort þeir aðilar sem komu

...