Ríkisheimsókn forseta Íslands, Höllu Tómasdóttur, og eiginmanns hennar, Björns Skúlasonar, til Danmerkur hefst í dag. Þetta er fyrsta opinbera heimsókn Höllu á erlendum vettvangi og líkt og hefð er fyrir er hún til Danmerkur. Halla er jafnframt fyrsti þjóðhöfðinginn sem Friðrik X. Danakonungur tekur á móti eftir að hann tók við krúnunni af Margréti Þórhildi, móður sinni.
Með í för verður Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra og fjölmenn viðskiptasendinefnd.
„Markmið heimsóknarinnar er að styrkja söguleg tengsl Íslands og Danmerkur og efla enn frekar hið nána samband þjóðanna,“ eins og það er orðað í tilkynningu frá embætti forseta Íslands.
Heimsóknin í dag hefst með því að konungshjónin taka á móti forsetahjónunum sem koma með báti að gömlu tollbryggjunni Toldboden í Kaupmannahöfn. Þaðan halda hjónin saman með hestvagni til formlegrar móttökuathafnar við Amalíuborgarhöll.
...