Eftir heldur lítið sumar hefur haustveðrið leikið við íbúa höfuðborgarsvæðisins undanfarna daga og vikur og margir landsmenn nýta sér það til útivistar. Þrjú af kennileitum miðborgarinnar sjást hér í blíðunni og innan um haustlitina sem setja svip…
Eftir heldur lítið sumar hefur haustveðrið leikið við íbúa höfuðborgarsvæðisins undanfarna daga og vikur og margir landsmenn nýta sér það til útivistar. Þrjú af kennileitum miðborgarinnar sjást hér í blíðunni og innan um haustlitina sem setja svip sinn á landið á þessum árstíma: Ráðhúsið, Dómkirkjan og Hótel Borg. Útlit er fyrir hæglætisveður um allt land í dag og á morgun en hitatölurnar fara nokkuð niður samkvæmt spám Veðurstofunnar. Veðrið gæti orðið heldur verra á fimmtudaginn og þá gæti snjóað.