Ísland mætir Litáen í dag í undankeppni Evrópumóts 21-árs landsliða í fótbolta, en leikið er á Víkingsvellinum og flautað til leiks klukkan 15. Þetta er gríðarlega þýðingarmikill leikur fyrir íslensku strákana, en með sigri eiga þeir enn möguleika á að komast í lokakeppni EM. Þeir eru í harðri baráttu við Danmörku, Wales og Tékkland um tvö efstu sætin í riðlinum en eitt lið kemst beint áfram og liðið í öðru sæti fer annaðhvort beint eða í umspil.