— Morgunblaðið/Eyþór

„Esjan er komin í klæðin sín fínu, kvenleg er hún – sjáðu þessa línu,“ orti þjóðskáldið.

Ólíklega leitaði þessi söngur þó á huga þeirra Jeremys Sims og Ninu Xu, sem hingað eru komin alla leið frá Melbourne í Ástralíu og urðu á vegi ljósmyndara Morgunblaðsins í gær. Samt sem áður gátu þau dáðst að fyrsta degi fölhvítrar Esju sem kann að hafa orðið Bubba Morthens að yrkisefni á ofanverðri síðustu öld.