Kona á fertugsaldri, erlendur ferðamaður sem var á ferð við annan mann, fannst látin í Jökulsá skammt neðan við Stuðlagil skömmu fyrir kl. 17 í gær. Lögreglunni barst tilkynning um að einstaklingur hefði fallið í ána á þriðja tímanum. Þá hafði viðkomandi sést fljóta í ánni en síðan horfið sjónum. Að leitinni komu björgunarsveitir frá Austurlandi, áhöfn á þyrlu Landhelgisgæslunnar, sjúkraliðar og lögregla. Önnur þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út til að flytja kafara á vettvang en var síðar kölluð til baka. Lögreglan á Austurlandi fer með rannsókn málsins.