Vertíð skemmtiferðaskipa ársins 2024 er að ljúka. Fleiri farþegar komu til Reykjavíkur í sumar en reiknað hafði verið með og hafa þeir aldrei verið fleiri á einu sumri. Þegar eitt skip var ókomið var heildarfjöldi farþega 322.042, samkvæmt tölum frá Faxaflóahöfnum
Komið til hafnar Pacific World siglir inn Viðeyjarsund á þriðjudaginn í fylgd dráttarbátanna Magna og Haka.
Komið til hafnar Pacific World siglir inn Viðeyjarsund á þriðjudaginn í fylgd dráttarbátanna Magna og Haka. — Morgunblaðið/sisi

Sigtryggur Sigtryggsson

sisi@mbl.is

Vertíð skemmtiferðaskipa ársins 2024 er að ljúka. Fleiri farþegar komu til Reykjavíkur í sumar en reiknað hafði verið með og hafa þeir aldrei verið fleiri á einu sumri.

Þegar eitt skip var ókomið var heildarfjöldi farþega 322.042, samkvæmt tölum frá Faxaflóahöfnum. Fyrra metið er frá því í fyrra, 306.311 farþegar. Síðasta skipið, Le Commandant Charcot, var væntanlegt í Sundahöfn í gærkvöldi.

Áætlað var að farþegar með því væru 240 og er sú tala reiknuð inn í fyrrgreinda heildartölu. Lokatölur verða ljósar eftir helgina.

Skipakomur til Faxaflóahafna voru alls 259. Fjöldi skipakoma í farþegaskiptum: 167 (þar af 68 leiðangursskip), almennar viðkomur 92 (þar af þrjú leiðangursskip).

...