Grímsey Spretthópur á að skoða byggðarvanda Grímseyjar.
Grímsey Spretthópur á að skoða byggðarvanda Grímseyjar. — Morgunblaðið/Sigurður Bogi

Bjarkey Olsen matvælaráðherra íhugar nú að stofna spretthóp til að bregðast við viðkvæmri stöðu byggðar í Grímsey. Hún segir það sannarlega vera vilja sinn að halda byggð um allt land, ekki síst í eyjunni þar sem byggð hefur verið frá landnámi.

Fjórar fjölskyldur hafa auglýst hús sín til sölu og enn fleiri íhuga að yfirgefa eyjuna eftir að í ljós kom að útgerðunum í byggðarlaginu verður ekki veitt undanþága frá vinnsluskyldu í tengslum við byggðakvóta.

Telja útgerðarmennirnir það ekki standa undir kostnaði að koma á fót fiskverkun í eyjunni sem myndi uppfylla öll skilyrði.

Að sögn Bjarkeyjar mat Byggðastofnun það svo að ekki væri lengur unnt að veita undanþáguna. „Það væri betra að allir aðilar sætu við sama borð og töldu þau ekki hægt að mismuna landsmönnum með þeim hætti sem verið hefur og

...