Karlalandsliðið í fótbolta sneri heldur betur blaðinu við í seinni hálfleik þegar það gerði jafntefli, 2:2, við Wales í Þjóðadeildinni á Laugardalsvellinum í gærkvöld. Eftir að Wales var yfir í hálfleik, 2:0, átti íslenska liðið frábæran síðari…
— Morgunblaðið/Eyþór

Karlalandsliðið í fótbolta sneri heldur betur blaðinu við í seinni hálfleik þegar það gerði jafntefli, 2:2, við Wales í Þjóðadeildinni á Laugardalsvellinum í gærkvöld. Eftir að Wales var yfir í hálfleik, 2:0, átti íslenska liðið frábæran síðari hálfleik með varamanninn Loga Tómasson í lykilhlutverki, en hann skoraði fyrra markið og átti allan þátt í því síðara. Ísland var hársbreidd frá sigri undir lokin. » 41