Kjartan Magnússon
Kjartan Magnússon

Kjartan Magnússon borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins ætlar að leggja til að Reykjavíkurborg láti af fjármögnun og annarri þátttöku í undirbúningsvinnu vegna hugmynda um flugvöll í Hvassahrauni. Tillöguna hyggst hann leggja fram á fundi borgarstjórnar á morgun. Að því er segir í greinargerð með tillögunni er meginástæða hennar þau eldsumbrot og jarðhræringar sem hafa orðið á Reykjanesskaga frá árinu 2021. „Ég vona að skynsemin sigri, að menn sjái að það sé vitleysa að setja meira fé og meiri vinnu í þessa hugmynd,“ segir Kjartan í samtali við Morgunblaðið.