Guðmundur Jón Kjartansson fæddist 27. apríl 1958 í Reykjavík. Hann lést á líknardeild Landspítalans 19. október 2024.
Foreldrar hans voru Kjartan Guðmundsson, f. 16. janúar 1914, d. 16. september 1988, og Svava Jónsdóttir, f. 4. ágúst 1928, d. 17. október 2023.
Systkini Guðmundar eru Ásthildur, f. 5. október 1950, og Kjartan, f. 11. desember 1951.
Sonur Guðmundar og Unnar Birgisdóttur er Kjartan, f. 8. nóvember 1976. Sambýliskona hans er Hanna Rún Sverrisdóttir og dóttir þeirra er Unnur, f. 5. ágúst 2015. Dóttir Kjartans og Láru Bjarkar Hördal er Hrafnhildur, f. 14. febrúar 2006.
Guðmundur ólst upp á Lynghaga í Vesturbænum í Reykjavík fyrstu tíu æviárin og hóf skólagöngu sína í Melaskóla. Fjölskyldan flutti í Búland í Fossvogi og gekk hann þá
...