Arnaldur Indriðason
Arnaldur Indriðason

Rithöfundurinn Arnaldur Indriðason stendur nú á tímamótum því alls hafa ríflega 20 milljónir eintaka selst af bókum hans. Samkvæmt tölum sem Forlagið tók saman fyrir Morgunblaðið hafa bækur Arnaldar komið út í 1.500 útgáfum á heimsvísu og útgáfuréttur þeirra verið seldur á 44 tungumál. Á Íslandi er salan farin að nálgast 650.000 eintök. Ný bók Arnaldar, Ferðalok, kemur út í dag. » 6