Sala á jólabjór er hafin í Vínbúðum ÁTVR og öðrum útsölustöðum, svo sem hjá örbrugghúsum og netverslunum. Í dag er sjálfur J-dagurinn sem þýðir að klukkan 20.59 hefst sala á Tuborg-jólabjórnum á börum og veitingahúsum
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Sala á jólabjór er hafin í Vínbúðum ÁTVR og öðrum útsölustöðum, svo sem hjá örbrugghúsum og netverslunum. Í dag er sjálfur J-dagurinn sem þýðir að klukkan 20.59 hefst sala á Tuborg-jólabjórnum á börum og veitingahúsum.
Alls verða 84 tegundir jólabjórs til sölu í Vínbúðunum að þessu sinni, að því gefnu að allar vörur skili sér frá framleiðendum í hillur verslana. Dæmi eru um að framleiðendur breyti áformum sínum á
síðustu stundu eða vörur