Önnur plata tríósins Sólstöður kemur út í dag og af því tilefni mun hljómsveitin halda tónleika víða um land og þá fyrstu í kvöld í menningarhúsinu Bergi á Dalvík. Þaðan er förinni heitið til Ísafjarðar þar sem leikið verður í Edinborgarhúsinu 2. nóvember og þriðju tónleikarnir verða í Mengi í Reykjavík 3. nóvember. Sólstöður skipa Mikael Máni á gítar, hollenski píanóleikarinn Stefan Bos og svissneski kontrabassaleikarinn Pierre Balda. Hafa þeir leikið saman til fjölda ára.