Ásgeir Þór Óskarsson fæddist 1. júlí 1935 í Reykjavík. Hann lést 14. október 2024 á Borgarspítalanum.
Foreldrar hans voru Ingibjörg Ásgeirsdóttir frá Ásgarði á Stokkseyri, f. 1905, d. 1984, og Óskar Gissurarson, f. 1903, d. 1990, frá Byggðarhorni í Flóa. Systur Ásgeirs eru Ingibjörg Helga, f. 1931, d. 2016, Birna, f. 1941, og Guðlaug, f. 1947.
Ásgeir giftist árið 1965 Svanlaugu Torfadóttur leikskólakennara, f. 1934. Svanlaug er dóttir Jóhönnu Egilsdóttur, f. 1900, d. 1987, og Torfa Magnússonar, f. 1897, d. 1983, en þau voru bændur í Hvammi, Hvítársíðu.
Börn Ásgeirs og Svönu eru: 1) Andvana fæddur drengur 1966. 2) Inga Ósk, f. 1968. Dóttir Ingu og fyrrverandi maka, Guðmundar Brynjólfssonar f. 1964, er Margrét Unnur, f. 1995. Hún er í sambúð með Þóri Má Davíðssyni, f. 1994, og eiga þau soninn Storm,
...