Eitt af því helsta sem forsætisráðherrar Norðurlandanna ræddu á fundi sínum í vikunni voru þær sameiginlegu áskoranir sem steðja að öllum ríkjunum, þar á meðal hvernig ætti að bregðast við stórauknum fjölda hælisleitenda.
Bjarni Benediktsson forsætisráðherra segir í samtali við Morgunblaðið í dag að Norðurlöndin og Evrópa öll standi nú á miklum tímamótum. Segir Bjarni að ráðherrarnir hafi rætt nýjan Evrópusáttmála sem á að samhæfa aðgerðir Evrópusambandsins og Schengen-svæðisins í þessum efnum, en að einnig hafi verið rætt hvernig stöðva mætti þennan
...