Guðmundur Jóhannes Borgarsson fæddist 24. september 1941 á Hesteyri í Jökulfjörðum. Hann lést á Landspítalanum 23. október 2024.

Foreldrar hans voru hjónin Jensey M. Kjartansdóttir, frá Miðvík, f. 18.8. 1907, d. 5.10. 1987, og Borgar Gunnar Guðmundsson, frá Rekavík, f. 2.9. 1911, d. 26.11. 1985.

Jóhannes var yngstur fjögurra bræðra. Hinir voru Jón Halldór, f. 1933, d. 2020, Guðjón Jósef, f. 1934, d. 1999, og Svavar Gunnar, f. 1940, d. 2017.

Eftirlifandi eiginkona Jóhannesar er Rósamunda Þórðardóttir, f. 11.2. 1945. Foreldrar hennar voru Þórður Guðni Njálsson og Daðína Jónasdóttir á Auðkúlu í Arnarfirði. Barn Jóhannesar og Rósamundu er Sigurður Júlíus, f. 1.7. 1980, giftur Andrési Pelaez.

Fyrri eiginkona Jóhannesar var Ásta Sigurðardóttir,

...