Íbúaráð Grafarholts og Úlfarsárdals hefur samþykkt að beina því til umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur að grípa til viðeigandi ráðstafana svo að almennir lóða- og framkvæmdaskilmálar vegna uppbyggingar í borgarhlutanum verði virtir
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Íbúaráð Grafarholts og Úlfarsárdals hefur samþykkt að beina því til umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur að grípa til viðeigandi ráðstafana svo að almennir lóða- og framkvæmdaskilmálar vegna uppbyggingar í borgarhlutanum verði virtir.
Einnig óskar íbúaráðið eftir að efnt verði til átaks vegna daprar umgengni á og við byggingarlóðir í Úlfarsárdal. Í mörgum tilfellum séu lóðirnar og nágrenni þeirra notuð sem geymslusvæði svo mánuðum skiptir, með tilheyrandi sóðaskap og slysahættu.
Beiðnin var tekin fyrir á síðasta fundi umhverfis- og skipulagsráðs, sem vísaði henni til meðferðar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu stjórnsýslu og gæða, deildar afnota og eftirlits.
Íbúaráð Grafarholts
...