Katrín Sigríður Árnadóttir fæddist í Reykjavík 30. maí 1942. Hún lést á Hjúkrunarheimilinu Ísafold
21. október 2024.
Katrín var dóttir hjónanna Helgu Þorsteinsdóttur, f. 26.8. 1913, d. 3.4. 2006, og Árna Björnssonar tónskálds, f. 23.12. 1905, d. 3.7. 1995.
Systir hennar er Björg Árnadóttir, f. 2.7. 1947, hennar maki er Andrew Cauthery, f. 26.12. 1944.
Katrín giftist Eggerti Jónssyni fv. borgarhagfræðingi, f. 25.8. 1941, d. 11.10. 2016. Sonur Katrínar er Árni Jón Eggertsson, f. 11.5. 1970. Maki hans er Kristín Halla Hannesdóttir, f. 13.5. 1972. Með fyrri konu sinni, Huldu Ólafsdóttur, f. 26.6. 1970, á Árni Jón þrjá drengi, Ólaf Árnason Klein lögfræðing,
f. 1.5. 1996, Kjartan Bjarma Árnason Klein hátækniverkfræðing, f. 9.9. 1998 og Elvar Breka Árnason læknanema, f. 4.2. 2002.