Allt bendir til að Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, verði ræðudrottning hins stutta þings sem nú er á lokametrunum. Inga hefur flutt 46 ræður og athugasemdir (andsvör) á 155. löggjafarþinginu og talað í samtals 355 mínútur, eða rétt tæpa sex tíma
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Allt bendir til að Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, verði ræðudrottning hins stutta þings sem nú er á lokametrunum.
Inga hefur flutt 46 ræður og athugasemdir (andsvör) á 155. löggjafarþinginu og talað í samtals 355 mínútur, eða rétt tæpa sex tíma.
Næstur kemur Sigurður Ingi Jóhannsson fjármálaráðherra sem flutt hefur 87 ræður/athugasemdir og talað í samtals 239 mínútur. Það helgast að því að umræður um fjárlagafrumvarpið hafa verið meginefni haustþingsins.
Eyjólfur enn ofarlega
Aðrir þingmenn sem talað hafa í meira en 100 mínútur eru Guðmundur Ingi Kristinsson 24/171, Eyjólfur Ármannsson 57/154, Andrés Ingi Jónsson 35/133, Willum Þór Þórsson 41/125 og Njáll
...