Flokkur fólksins hefur nefnt að það ætti að eiga við persónuafsláttinn þannig að hann fari stiglækkandi eftir því sem laun verða hærri. Kolbrún segist átta sig á að eitthvað þurfi að sækja fé. „Það er meira en tilfærsla persónuafsláttar. Það hefur verið nefndur bankaskattur, hátekjuskattur og fleira í því sambandi.“

Segir hún orðið mikinn mun og æ meiri mun milli þeirra sem eru með lítið á milli handanna og þeirra sem eru með mikið. „Við erum að sjá margra milljóna króna mun á launum.“

Kolbrún, sem kemur úr borgarpólitíkinni, segist munu halda áfram að berjast, á vettvangi landsmálanna, fyrir málefnum fólks sem hefur það ekki eins gott og annað fólk. Hún vill hjálpa þeim sem minna mega sín, hafa veikst eða eru í virkilegum erfiðleikum með grunnþarfirnar. „Fyrir þessu berjumst við með kjafti og klóm.“

...