Víkingur úr Reykjavík vann sinn annan sigur í röð í deildarkeppni Sambandsdeildar karla í fótbolta í gær er liðið lagði Borac Banja Luka frá Bosníu, 2:0, á Kópavogsvelli. Víkingur vann belgíska liðið Cercle Brugge á sama velli í síðasta mánuði, en…

Víkingur úr Reykjavík vann sinn annan sigur í röð í deildarkeppni Sambandsdeildar karla í fótbolta í gær er liðið lagði Borac Banja Luka frá Bosníu, 2:0, á Kópavogsvelli. Víkingur vann belgíska liðið Cercle Brugge á sama velli í síðasta mánuði, en tapaði fyrir Omonia frá Kýpur á útivelli í fyrstu umferðinni og er því með sex stig eftir þrjár umferðir og á góðri leið með að komast í umspil um sæti í 16-liða úrslitum. » 26