Fimm Íslandsmet litu dagsins ljós á fyrsta kvöldi Íslandsmótsins í 25 metra laug í sundi í Ásvallalaug í gær. Símon Elías Statkevicius sló 15 ára gamalt Íslandsmet Más Árna Árnasonar í 50 metra skriðsundi er hann synti á 21,93 sekúndum. Birnir Freyr Hálfdánarson sló 17 ára gamalt Íslandsmet Arnar Arnarsonar í 100 metra flugsundi en hann kom í mark á 52,51 sekúndu. Met Arnar var 52,53 sekúndur. Birnir er aðeins 18 ára gamall. Hin Íslandsmetin komu í boðsundi. » 54