Tilnefndur Víkingur Heiðar flutti Goldberg-tilbrigðin í Hörpu fyrr á árinu.
Tilnefndur Víkingur Heiðar flutti Goldberg-tilbrigðin í Hörpu fyrr á árinu. — Morgunblaðið/Eggert

Víkingur Heiðar Ólafsson píanóleikari var í gær tilnefndur til bandarísku Grammy-verðlaunanna. Fékk hann tilnefningu í flokki bestu einleikara í klassískri tónlist fyrir flutning sinn á Goldberg-tilbrigðunum eftir Johann Sebastian Bach.

Aðrir sem hlutu tilnefningu í sama flokki eru ásláttarleikarinn Andy Akiho, sellóleikarinn Seth Parker Woods, gítarleikarinn Mak Grgic og fiðluleikarinn Curtis Stewart.

Þetta er í fyrsta sinn sem Víkingur Heiðar fær tilnefningu til Grammy-verðlaunanna, sem eru ein virtustu verðlaun sem hægt er að vinna til í tónlistarheiminum.