Hátt í 4.000 umsóknir bárust, á Facebook-síðu Nóa Síríus, um að smakka nammi á undan þjóðinni og aðstoða við val á nýjungum áður en þær fara á markað. Anna Fríða Gísladóttir framkvæmdastjóri markaðssviðs segir að viðtökurnar hafi farið fram úr…
Nammismakk Vinsælasti molinn er merktur með Íslandsstimpli.
Nammismakk Vinsælasti molinn er merktur með Íslandsstimpli. — Morgunblaðið/Valdís Thor

Óskar Bergsson

oskar@mbl.is

Hátt í 4.000 umsóknir bárust, á Facebook-síðu Nóa Síríus, um að smakka nammi á undan þjóðinni og aðstoða við val á nýjungum áður en þær fara á markað.

Anna Fríða Gísladóttir framkvæmdastjóri markaðssviðs segir að viðtökurnar hafi farið fram úr björtustu vonum og þau munu velja 50-60 manns af báðum kynjum á öllum aldri til að taka þátt í smakkinu. Nói Síríus eigi stóran hlut í hjörtum landsmanna og fyrirtækið vilji leita til þeirra

...