„Þótt ég sé borgarbarn hef ég alltaf borið sterkar taugar til íslensks landbúnaðar,“ segir Lilja Alfreðsdóttir, viðskipta- og menningarráðherra og varaformaður Framsóknarflokksins. Í gær gerði hún sér erindi austur fyrir fjall og tók þar á móti gjöf sem hún fékk á 50 ára afmæli sínu í fyrra. Þar og þá flutti Guðni Ágústsson fyrrverandi landbúnaðarráðherra ávarp og hafði á orði að gefa Lilju lamb á fæti – gimbur sem hún vitjaði nú um.
Gimbrin góða, sem er af kyni forystufjár, er svarthöfðótt að lit og kemur úr fjárstofni Skúla Ragnarssonar á Ytra-Álandi í Þistilfirði. Á dögunum fór Helgi Eggertsson, bóndi á Kjarri í Ölfusi, þangað og keypti nokkur líflömb sem hann svo flutti suður. Helgi mun og hafa gimbrina á fóðrum fyrir ráðherrann uns annað verður ákveðið. Og nafnið er komið; gimbrin heitir Hrifla, sem vísar til bæjarins norður í Bárðardal þaðan sem Jónas
...