Lögreglan greip alls 447 sinnum til símahlustunar eða skyldra úrræða við rannsókn mála að fengnum dómsúrskurði á seinasta ári. Fjölgaði slíkum aðgerðum um 41% á milli ára. Í 241 aðgerð lögreglu var um rannsókn á fíkniefnabrotum að ræða. Úrskurðirnir geta oft varðað fleiri en eina aðgerð við rannsókn á sama máli en alls var óskað heimildar dómstóla til 481 aðgerðar í 306 skipti í 92 málum í fyrra. omfr@mbl.is » 18