Söngkonan og lagasmiðurinn Anna Sóley og gítar­leikarinn Daníel Helgason munu halda tónleika í Djúpinu, þar sem veitingastaðurinn Hornið er til húsa, í Hafnarstræti 15 í Reykjavík á morgun, sunnudaginn 10. nóvember, kl. 17. Munu þau flytja blöndu af nýjum og gömlum lögum eftir Önnu og stefna að því að eiga hugljúfa stund með áheyrendum. Aðgangur er ókeypis. Anna hefur komið víða við í tónlist og sendi frá sér breiðskífuna Modern Age Ophelia fyrir tveimur árum.