Reykjavíkurborg hefur engin áform um að setja upp öryggismyndavélar í Grafarvogi. Þetta upplýsir Alexandra Briem, formaður stafræns ráðs borgarinnar, í bréfi til íbúaráðs Grafarvogs. Á fundi sínum 3
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Reykjavíkurborg hefur engin áform um að setja upp öryggismyndavélar í Grafarvogi. Þetta upplýsir Alexandra Briem, formaður stafræns ráðs borgarinnar, í bréfi til íbúaráðs Grafarvogs.
Á fundi sínum 3. júní sl. lagði íbúaráðið fram bókun þar sem fram kemur að í kosningu á meðal íbúa í Grafarvogi í Hverfinu mínu árið 2018 lenti „rafræn vöktun“ í öðru sæti yfir þau verkefni sem íbúarnir vildu að ráðist yrði í.
Þá hafði áður verið búið að senda inn þessa tillögu í samkeppnina og hún hlotið brautargengi og grænt ljós hjá borginni.
„En síðan má segja að ekkert hafi gerst þrátt fyrir ítrekaðar fyrirspurnir, aðeins sagt að málið væri í ferli. Íbúaráð Grafarvogs lýsir yfir
...