Ágúst Valfells var fæddur í Reykjavík 24. mars 1934. Foreldrar hans voru Sveinn Bjarnþórsson Valfells og Helga Bjarnason Valfells.

Ágúst var elstur þriggja systkina. Næst honum í aldri var Sigríður, f. 1938, d. 1998, en yngstur er Sveinn, f. 1941.

Ágúst var fæddur og uppalinn í Reykjavík en bjó með foreldrum sínum og systkinum í New York árin 1944 til 1946. Hann lauk stúdentsprófi frá MR árið 1953 og hélt þá til náms við McGill-háskóla í Kanada þar sem hann lauk prófi í efnaverkfræði árið 1957. Ágúst lauk MSc-gráðu í efnaverkfræði frá Massachusetts Institute of Technology árið 1959 og fór svo í doktorsnám í kjarnorkuverkfræði við Iowa State University. Útskrifaðist hann þaðan vorið 1962.

Að námi loknu flutti hann aftur til Íslands þar sem hann varð fyrsti forstöðumaður Almannavarna 1962-1964.

...