Skráðu þig inn til að horfa á þáttinn
Athugið að Dagmálsþættir eru aðeins fyrir áskrifendur Morgunblaðsins.
Umbúðalaust
30. apríl 2024
Manndrápsmál á Íslandi eru afar fátíð miðað við það sem þekkist á Norðurlöndunum. Við erum á svipuðu róli og Noregur þegar horft er á mál miðað við fjölda íbúa. Guðbjörg S. Bergsdóttir er verkefnastjóri á gagnavísinda og upplýsingadeild hjá embætti ríkislögreglustjóra og hefur puttann á púlsínum þegar kemur að tölfræði yfir hvers konar afbrot framin eru hér á landi.
Á tólf mánuðum hafa komið upp átta manndrápsmál og er upplifun margra að það séu tölur sem við höfum ekki séð áður. En það er ekki tilfellið. Guðbjörg rekur það í þættinum og upplýsir að við höfum áður þurft að horfa framan í fimm slík mál á einu ári.
Hún fer yfir hvers eðlis þau manndrápsmál sem upp hafa komið á öldinni eru. Þarf engum að koma á óvart að karlmenn eru 90 prósent gerenda. Þá segir hún frá þolendakönnunum sem löreglan stendur fyrir þar sem meðal annars kemur í ljós að einungis 10 til 12 prósent kynferðisbrota eru tilkynnt og það þrátt fyrir mikla umræðu og vakningu í samfélaginu.
Fáðu meira með vikupassa!
Vikupassinn veitir þér fullan aðgang að Dagmálum ásamt öllu öðru efni fyrir áskrifendur Morgunblaðsins í viku fyrir aðeins 2.629 kr.
Fréttir - Ritstjórnargreinar - Menning - Umræðan - Minningargreinar - Viðtöl - Viðskipti - Daglegt líf - Aðsendar greinar - og umfram allt: fagleg fréttamennska